Mogens Lykketoft, forseti danska þingsins, verður í opinberri heimsókn á Íslandi frá mánudegi í næstu viku og fram á miðvikudag. Hann mun eiga fundi með Einari K. Guðfinnssyni, forseta Alþingis, og fleiri forystumönnum í íslenskum stjórnmálum.

Danski þingforsetinn fer til Vestfjarða á meðan á dvöl hans stendur og heimsækir meðal annars Ísafjörð og Hrafnseyri við Arnarfjörð, fæðingarstað Jóns Sigurðssonar.