Forseti Íslands Guðni Th Jóhannesson verður í sóttkví fram til mánudagsins 9. nóvember vegna veirusmits sem greinst hefur hjá starfsmanni á Bessastöðum að því er fram kemur í fréttatilkynningu.

Starfsmaðurinn er nær einkennalaus og forseti hefur engin einkenni COVID-19 veirusjúkdómsins. Aðrir í fjölskyldu forseta þurfa ekki að vera í sóttkví.