Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson dvaldi á hjartadeild Landspítala-Háskólasjúkrahúss mánudag og þriðjudag í þessari viku og gekkst þar undir hjartaþræðingu og kransæðavíkkun.

Aðgerðin tókst ágætlega en í framhaldi af henni hafa læknar ráðlagt forseta að vera ekki í fullu starfi næstu daga.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá skrifstofu forsetans.