Forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson, hefur þegið boð Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og forseta Kína, Hu Jintao, um að sækja Ólympíuleikana sem verða haldnir í Peking í næsta mánuði. Forsetinn mun koma til Kína 21. ágúst, vera viðstaddur lokahátíð leikanna 24. ágúst, fylgjast með keppnisgreinum og heimsækja íslenska íþróttafólkið.

Frá Kína heldur forsetinn til Dakka höfuðborgar Bangladess þar sem hann verður ásamt forseta Bangladess Iajuddin Ahmed ræðumaður á alþjóðlegu þingi um loftslagsbreytingar, gróðurfar og hækkun sjávarborðs. Íslenskir sérfræðingar og vísindamenn verða á meðal þátttakenda á þinginu.