Í Viðskiptablaðinu í dag skorar Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, á forseta Íslands að vinna með samtökunum að því að íslensk hönnun og framleiðsla sjáist á Bessastöðum en í viðtalinu segist Sigurður sakna þess þegar hann komi í opinberar byggingar að sjá íslenska framleiðslu og hönnun. Hann segir að á Bessastöðum gætu íslenskir framleiðendur stillt upp handbragði sínu og hönnun á fallegan hátt svo almenningi gæfist kostur á að sjá hvernig þetta kæmi út. Slíkt gæti verið dæmi um stefnumótun hins opinbera til að gefa einkafyrirtækjum tækifæri til að byggja upp sterkan iðnað.

Sigurður Hannesson segist í viðtalinu sakna þess þegar hann komi í opinberar byggingar að sjá íslenska framleiðslu og hönnun. „Ég held það væri mjög gaman að sjá íslensk húsgögn eða íslenska framleiðslu á stað eins og á Bessastöðum. Ég skora á forseta Íslands að vinna með okkur í slíku verkefni. Þar gætu íslenskir framleið- endur stillt upp handbragði sínu og hönnun á fallegan hátt svo almenningi væri gefinn kostur á að sjá hvernig þetta kæmi út,“ segir Sigurður en húsgagnaframleið- endur eru meðal félagsmanna samtakanna. „Við sjáum hvernig önnur lönd, eins og til dæmis í Skandinavíu, hafa byggt upp iðnað í kringum hönnuði og framleiðslu á húsgögnum og fleiru. Þetta gæti verið dæmi um stefnumótun hins opinbera til að gefa einkafyrirtækjum tækifæri til að byggja upp sterkan iðnað. Við sjáum til dæmis að í opinberum byggingum er mikið af skandinavískri hönnun.

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, hefur þegar sent Samtökum iðnaðarins bréf þess efnis að hann þakki áskorunina sem birtist í blaðinu í dag og taki henni fagnandi. Hann nefnir að búið sé að þjófstarta verkefninu með því að setja upp í gærdag nýja bókahillu sem prýðir bókhlöðuna á Bessastöðum en um sé að ræða vandaða íslenska smíði. Ákveðið hefur verið að efna til fundar í kjölfar beiðni frá SI þess efnis.