Vladimir Pútín og eiginkona hans Lyudmila tilkynntu í rússneska sjónvarpinu nú fyrir stundi að hjónabandi þeirra væri á enda. BBC greinir frá þessu á vef sínum.

Pútin sagði að þau hafi varla hist undanfarið, þau eigi hvort sitt lífið og hafa ekki búið saman undanfarið.

Pútin og eiginkonan sáust síðast saman fyrir næstum ári síðan, þegar hann sór embættiseið sinn sem forseti.

Vladimir og Lyudmila gengu í hjónaband árið 1983 og eiga dæturnar Mariu og Yekaterinu.