Leifur Þór Leifsson, flugvélaverkfræðingur og dósent, hlaut Rannsóknarverðlaun Háskólans í Reykjavík (HR) í ár. Kennsluverðlaun HR hlaut Daníel Brandur Sigurgeirsson, aðjúnkt við tölvunafræðideild.  Þjónustuverðlaunin hlaut Hrannar  Traustason, umsjónarmaður rafeindaverkstæðis. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, afhenti verðlaunin.

Í tilkynningu frá Háskólanum í Reykjavík segir að Leifur Þór starfi við tækni- og verkfræðideild skólans og sé meðlimur í rannsóknarsetrinu Engineering Optimization & Modeling Center í HR. Leifur er einnig forstöðumaður Rannsóknarstofu fyrir ómönnuð farartæki sem er hluti af CADIA rannsóknarsetrinu sem starfrækt er innan HR.

Rannsóknarsvið Leifs eru þróun hraðvirkra hönnunaraðferða og gerð ómannaðra farartækja. Við val á rannsóknarverðlaunum HR er litið til birtinga rannsókna á alþjóðlegum vettvangi, öflun styrkja, framlags til rannsóknarstarfs háskólans, áhrifa á nemendur og unga rannsakendur og þátttöku í uppbyggingu rannsóknarsetra.

Við afhendingu verðlaunanna sagði dr. Ari Kristinn Jónsson, rektor HR, að Leifur hefði náð ótrúlegum árangri á ekki mjög mörgum árum.

„Hann hefur birt tugi greina á síðstu árum, gefið út tvær bækur, lagt til 10 bókakafla og verið höfundur um 60 greina á ráðstefnum.  Hann hefur sótt 19 styrki á undanförnum árum og komið að stofnun þriggja nýrra fyrirtækja.“
Eins og áður sagði hlaut Daníel Brandur kennsluverðlaun HR en þau eru veitt í samstarfi við Stúdentafélag HR.

Ari Kristinn sagði við athöfnina í dag að Daníel hafi tekist á við mjög fjölbreytta flóru námskeiða á undanförnum árum.

„Hann hefur þróað og skapað ný námskeið, farið nýjar leiðir í kennslunni og náð mjög sterkum tengslum við nemendur.  Hann hefur fengið afbragðsgott kennslumat í gegnum árin og leitt nýtingu upplýsingatækni.“ Kennsluverðlaunin eru veitt í samstarfi við Stúdentafélag HR.

Handhafi þjónustuverðlauna er Hrannar. Þegar kemur að þjónustuverðlaunum er horft til gæða þjónustu, skjótra viðbragða, góðs viðmóts, frumkvæðis, tengsla við starfsmenn og nemendur, samstarfs við önnur svið HR, þekkingar og færni á fagsviði.