Opinber heimsókn forseta Íslands Ólafs Ragnars Grímssonar til Indlands hófst í morgun, þriðjudaginn 12. janúar, í Mumbai en í heimsókninni fer forseti einnig til Delhi og Bangalore.

Forseti Íslands mun eiga fundi með forseta Indlands frú Patibha Patil og varaforseta landsins Mohammad Hamid Ansari sem og forsætisráðherranum Manmohan Singh, utanríkisráðherranum og fjölda annarra ráðamanna. Þá mun forseti taka við Nehru verðlaununum við hátíðlega athöfn í Delhi. Í fylgd með forseta eru Dorrit Moussaieff forsetafrú, embættismenn, vísindamenn og sérfræðingar við Háskóla Íslands, forystumenn í orkumálum sem og fulltrúar ýmissa íslenskra fyrirtækja.

Útflutningsráð hefur unnið að skipulagningu þess þáttar heimsóknarinnar og er Jón Ásbergsson framkvæmdastjóri Útflutningsráðs með í för. Í morgun hófst heimsóknin með málþingi sem haldið var á vegum indverska viðskiptaráðsins þar sem fjallað var um margvísleg verkefni á sviði tækni, orku og viðskipta sem íslenskir og indverskir aðilar vinna nú að. Í lok málþingsins var undirritaður samningur milli íslenska  jarðhitafyrirtækisins Reykjavik Geothermal og indverska orkufyrirtækisins Thermax um jarðhitarannsóknir á Indlandi og samningur milli orkutæknifyrirtækisins Marorku og Unique Maritime Group á Indlandi.

Að því loknu heimsóttu forsetahjónin skóla fyrir fátæk börn þar sem áhersla er lögð á tölvuþekkingu og samfélagsfræði. Síðan fóru þau í endurhæfingarstöð þar sem fyrirtækið Össur kynnti framleiðsluvörur sínar og hvernig þær geta gagnast fólki sem orðið hefur fyrir slysi, glímir við sjúkdóma eða fötlun.

Í kvöld heldur ríkisstjóri Maharastra fylkis hátíðarkvöldverð til heiðurs forseta Íslands þar sem fjöldi Íslendinga verður meðal gesta. Á morgun verður sérstök kynning á möguleikum indverskra kvikmyndafyrirtækja til að nýta Ísland sem vettvang fyrir töku á kvikmyndaatriðum eða heilum kvikmyndum. Á Indlandi eru framleiddar fleiri kvikmyndir en í nokkru öðru landi í veröldinni og hafa hin öflugu kvikmyndafyrirtæki í vaxandi mæli leitað til annarra landa þar sem völ er á einstæðri náttúru og hæfileikaríku samstarfsfólki. Fulltrúar íslenskra kvikmyndafyrirtækja munu taka þátt í þeirri kynningu.

Aðaldagar opinberu heimsóknarinnar verða í Delhi fimmtudaginn 14. og föstudaginn 15. janúar. Sá hluti heimsóknarinnar hefst með hátíðarmóttöku við forsetahöllina þar sem forseti og forsetisráðherra Indlands taka á móti forseta Íslands. Síðan mun forseti leggja blómsveig frá íslensku þjóðinni að leiði Mahatma Gandhi. Að því loknu hefjast fundir með indverskum ráðamönnum og forystumönnum í viðskiptalífi. Síðdegis verður sérstök hátíðarsamkoma þar sem forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson mun taka við Nehru verðlaununum að viðstöddum fjölda indverskra ráðamanna. Um kvöldið býður forseti Indlands til hátíðarkvöldverðar til heiðurs forseta Íslands í forsetahöllinni í Delhi.

Föstudaginn 15. janúar verða haldin í Delhi tvö málþing. Það fyrra fjallar um samvinnu Íslands og Indlands á sviði endurnýjanlegrar orku þar sem Guðni A. Jóhannesson orkumálastjóri og fleiri íslenskir sérfræðingar munu halda erindi ásamt dr. Pachauri Nóbelsverðlaunahafa og formanni Loftslagsnefndar Sameinuðu þjóðanna (IPCC). Síðara málþingið mun fjalla um loftslagsbreytingar, bráðnun jökla og jarðvegsrannsóknir í Himalayafjöllum en þar munu íslenskir sérfræðingar, m.a. dr. Guðrún Gísladóttir prófessor við Háskóla Íslands, flytja erindi. Þá mun dr. Ólafur Þ. Harðarson prófessor halda fyrirlestur við Nehruháskólann í Delhi en Háskóli Íslands hefur lagt áherslu á aukna samvinnu við indverska háskóla.