Ellefu Íslendingar voru í dag sæmdir fálkaorðu af forseta Íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni, við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Samkvæmt tilkynningu frá embættinu voru eftirfarandi einstaklingar sæmdir fálkaorðu í þetta skiptið:

1. Gissur Guðmundsson matreiðslumeistari og forseti Alþjóðasamtaka matreiðslumeistara, Reykjavík, riddarakross fyrir forystu í alþjóðasamtökum matreiðslumeistara og á vettvangi íslenskra matreiðslumeistara

2. Gunnar Finnsson fyrrverandi varaframkvæmdastjóri og formaður Hollvina Grensásdeildar, Reykjavík, riddarakross fyrir störf í þágu endurhæfingar og heilbrigðismála

3. Halldór Þorgils Þórðarson tónlistarmaður og fyrrverandi skólastjóri, Búðardal, riddarakross fyrir störf í þágu tónlistar og tónlistarmenntunar í heimabyggð

4. Ingibjörg Björnsdóttir listdansari og fyrrverandi skólastjóri, Reykjavík, riddarakross fyrir brautryðjandastörf á vettvangi íslenskrar danslistar

5. Jóhannes Einarsson fyrrverandi skólameistari, Hafnarfirði, riddarakross fyrir störf í þágu iðnmenntunar og verknáms

6. Kristín Marja Baldursdóttir rithöfundur, Reykjavík, riddarakross fyrir ritstörf og framlag til íslenskra bókmennta

7. Ólafur Haralds Wallevik prófessor, Reykjavík, riddarakross fyrir rannsóknir og þróun umhverfisvænna byggingarefna

8. Sigríður Hafstað frá Tjörn, Svarfaðardal, riddarakross fyrir störf í þágu heimabyggðar, félagsmála og menningar

9. Sigrún Helgadóttir líf- og umhverfisfræðingur, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til umhverfismenntunar og náttúruverndar

10. Sæmundur Sigmundsson bifreiðarstjóri, Borgarnesi, riddarakross fyrir störf í þágu fólksflutninga og ferðaþjónustu

11. Þórdís Bergsdóttir forstöðumaður, Seyðisfirði, riddarakross fyrir framlag til ullariðnaðar og hönnunar