Forseti Íslands, hr.  Ólafur Ragnar Grímsson hefur ákveðið að staðfesta lög um heimild fjármálaráðherra, fyrir hönd ríkissjóðs, til að ábyrgjast lán Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta frá breska og hollenska ríkinu til að standa straum af greiðslum til innstæðueigenda hjá Landsbanka Íslands, eða hin svokölluðu Icesave lög.

Í yfirlýsingu frá forsetanum kemur fram að margvíslegir fyrirvarar séu á hinu upprunalega frumarpi. Hins vegar séu þeir niðurstaða samvinnu fulltrúa fjögurra þingflokka í fjárlaganefnd Alþingis og byggðir á tillögum og hugmyndum fjölda sérfræðinga og áhugafólks á almennum vettvangi.

Því hefur forsetinn ákveðið að staðfesta lögin „með sérstakri áritaðri tilvísun til fyrirvara Alþingis,“ eins og það er orðað í yfirlýsingu forsetans.

„Samstaða hefur náðst á Alþingi og utan þess um að afgreiða lögin í krafti þessara fyrirvara og Alþingi samþykkti þá með afgerandi hætti. Eðlilega er þó enn andstaða við málið meðal almennings eins og undirskriftir um 10.000 Íslendinga, sem forseta hafa borist, eru meðal annars til vitnis um,“ segir í yfirlýsingunni.

Þá segir jafnframt að fyrirvararnir sem Alþingi smíðaði og samþykkti taki mið af sanngjörnum rétti þjóðarinnar, hagsmunum Íslendinga á komandi árum og alþjóðlegri samábyrgð.

„Um leið lætur forseti í ljósi þá ósk, að kraftar þings og þjóðar verði sameinaðir í því brýna verkefni að endurreisa íslenskt efnahagslíf, styrkja fjárhag heimilanna og stoðir atvinnuveganna,“ segir í yfirlýsingunni.

„Að undanförnu hefur okkur birst á margvíslegan hátt að Íslendingar eiga fjölþætt sóknarfæri, að auðlindir landsins, hæfni og þekking þjóðarinnar geta orðið grundvöllur að traustu og réttlátu hagkerfi. Þau sóknarfæri þarf nú að nýta.“