Francois Hollande vildi ekki ræða ásaknir um framhjáhald á fréttamannafundi sem nú stendur yfir. Efni fundarins er efnahagsmál. Þetta kemur fram á vef BBC.
Hollande sagðist þó á fundinum þurfa að ræða málið áður en opinber heimsókn hans til Bandaríkjanna hefst í næsta mánuði.
Í tímaritinu Closer, sem kom út á föstudag, segir að Hollande hefði átt í ástarsambandi við leikkonuna Julie Gayet.
Hollande hefur sagt að tímaritið hafi brotið gegn friðhelgi einkalífs hans en forsetinn hefur ekki neitað þessu.
Valerie Trierweiler, sambýliskona Hollande, liggur á sjúkrahúsi. Ástæða dvalarinnar er depurð en hún var lögð inn sama dag og frétt Closer birtist.
Óvinsælasti forseti Frakklands frá upphafi
Samkvæmt könnun BVA frá í október er Hollande óvinsælasti forseti landsins frá því að mælingar hófust fyrir 32 árum. Aðeins 26% Frakka styðja forsetann samkvæmt könnuninni. Til samanburðar fór fylgi við Nicolas Sarkozy lægst í 30%.
Ósennilegt er að tíðindi föstudagsins hafi aukið fylgi Hollande.
Hér er Hollande ásamt Julie G ayet.