Forsætisnefnd Alþingis gekk í gær frá skipan þriggja manna í vinnuhóp sem ætlað er að leggja mat á hvort skýringar á falli íslensku bankanna og tengdum efnahagsáföllum megi að einhverju leyti finna í starfsháttum og siðferði.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá nefndinni.

Í vinnuhópinn voru skipuð Vilhjálmur Árnason, heimspekingur og prófessor við Háskóla Íslands, Salvör Nordal heimspekingur og forstöðumaður Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands, og Kristín Ástgeirsdóttir, sagnfræðingur og framkvæmdastýra Jafnréttisstofu.

Í tilkynningunni kemur fram að vinnuhópunum er ætlað að vinna að rannsókninni í samráði við rannsóknarnefnd Alþingis, en bæði rannsóknarnefndin og vinnuhópurinn starfa á grundvelli laga um rannsókn á aðdraganda og orsökum falls íslensku bankanna og tengdra atburða.

Niðurstöðum vinnuhópsins er ætlað að verða liður í þeirri skýrslu sem rannsóknarnefndin skilar.