Geir H. Haarde forsætisráðherra sagði á blaðamannafundi sem nú stendur yfir í Ráðherrabústaðnum að áfram verði rætt við Rússa um lán, þrátt fyrir fyrirhugaða aðstoð frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.

„En þetta getur haft þau áhrif að við þurfum ekki að tala við þá um eins háar upphæðir og áður," sagði hann.

Þá sagði hann að rætt hefði verið við fjármálaráðuneytið í Japan að undanförnu en engin niðurstaða væri komin í það mál.