Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hefur sett á fót ráðgjafarhóp ríkisstjórnarinnar til að vinna tillögur um breytingar á stjórnarskránni.

Björg Thorarensen, prófessor í stjórnskipunarrétti og forseti lagadeildar Háskóla Íslands, mun leiða ráðgjafarhópinn, sem undirbúa mun frumvarp til stjórnarskipunarlaga sem lagt verði fram á Alþingi á næstu vikum.

Mun Björg koma tímabundið til starfa í forsætisráðuneytinu á meðan á þessu verkefni stendur.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu en aðrir í hópnum eru þau Bryndís Hlöðversdóttir, forseti lagadeildar Háskólans á Bifröst, og Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda.

Þá kemur fram að í erindisbréfi til ráðgjafarhópsins er vísað í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og henni falið að gera tillögu um stjórnarskrárákvæði um eftirtalið:

a) auðlindir í þjóðareign, b) þjóðaratkvæðagreiðslur, c) aðferð við breytingar á stjórnarskrá með sérstakri þjóðaratkvæðagreiðslu.

Jafnframt er þess óskað að ráðgjafarhópurinn meti í ljósi starfs stjórnarskrárnefndar á árunum 2005-2007, og þess víðtæka samráðs sem þá átti sér stað, hvort rétt sé að gera tillögu um fleiri stjórnarskrárbreytingar á þessu stigi, einkum varðandi umhverfisvernd.

Þá verður ráðgjafarhópnum falið að hefja undirbúning lagasetningar varðandi stjórnlagaþing eftir komandi alþingiskosningar og móta tillögur um nauðsynlega lagasetningu og eftir atvikum setningu bráðabirgðaákvæðis í stjórnarskrá.

Í tilkynningunni kemur fram að forsætisráðherra mun að fengnum tillögum framangreindra sérfræðinga hafa samráð við alla flokka, sem fulltrúa eiga á Alþingi, áður en frumvarp til stjórnarskipunarlaga verður lagt fram á Alþingi.

Þá hefur forsætisráðherra falið Þorkeli Helgasyni, stærðfræðingi, að stýra vinnu við undirbúning hugsanlegra breytinga á kosningalögum fyrir komandi kosningar í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar þar sem segir að kosningalögum verði breytt með þeim hætti að opnaðir verði möguleikar á persónukjöri í kosningum til Alþingis. Samráð verður haft við fulltrúa allra stjórnmálaflokka sem fulltrúa eiga á Alþingi í þessari vinnu.