Í Morgunkorni Glitnis er greint frá því að Geir H. Haarde, forsætisráðherra, hafi sagt í viðtali við fréttaveituna Bloomberg sem birtist í morgun að til greina komi að setja áform um frekari skattalækkanir á bið þar til að betra jafnvægi komist á í hagkerfinu. Geir segir tímasetningar skattalækkana vera afar mikilvægar og að ákvarðanir varðandi skattalækkanir verði teknar að vandlega athuguðu máli og með tilliti til þess hvað er að gerast í hagkerfinu þá stundina.

Svar við gagnrýni S&P? Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá því í maí kemur fram að stefnt sé að frekari lækkun tekjuskatts einstaklinga og fyrirtækja á yfirstandandi kjörtímabili. Þá hefur viðskiptaráðherra skorið upp herrör gegn óbeinum sköttum á borð við stimpilgjöld  og vörugjöld. Í Morgunkorninu segir að orð forsætisráðherra nú gefi til kynna að tímar ábyrgari efnahagstjórnar séu framundan en ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks var á sínum tíma gagnrýnd fyrir að tímasetja skattalækkanir illa út frá hagsveiflunni og hafa þannig stuðlað að aukinni þenslu.

Alþjóðleg matsfyrirtæki og stofnanir hafa ávítt stjórnvöld fyrir rangar tímasetningar skattalækkana og skammsýna stefnu í ríkisfjármálum. Í síðustu viku breytti Standard & Poor's horfum fyrir lánshæfi ríkissjóðs í neikvæðum úr stöðugum vegna viðvarandi áhyggna af ójafnvægi í hagkerfinu, segir í Morgunkorninu.

Góð tíðindi fyrir Seðlabankann Ljóst er að orð forsætisráðherra eru góð tíðindi fyrir Seðlabankann enda er lítill broddur í aðhaldsamri peningamálastefnu sem rekin er samhliða reglulegum skattalækkunum úr stjórnarráðinu. Slíkt sendir tvöföld skilaboð til hagkerfisins sem er afar óheppilegt á óvissutímum líkt og þeim sem nú ríkja, að mati Greiningar Glitnis.