Eggert Benedikt Guðmundsson, forstjóri útgerðarfyrirtækisins HB Granda, hefur ákveðið að láta af störfum hjá fyrirtækinu 31. júlí næstkomandi.

Fram kemur í tilkynningu að Eggert var markaðsstjóri félagsins frá júlí 2004 til febrúar 2005 og hefur frá þeim tíma starfað sem forstjóri.