Gunnar Smári Egilsson hefur látið að störfum sem forstjóri Dagsbrúnar. Gunnar Smári mun veita nýjum sjóði forstöðu, Dagsbrún Mediafund, sem tekur við uppbyggingu og útgáfu Nyhedsavisen í Danmörku og undirbýr frekari útgáfu fríblaða í öðrum löndum. Þá mun Gunnar Smári áfram koma að rekstri Wyndeham Press Group í Bretlandi með stjórnarsetu í félaginu, segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.

"Flest bendir til að Nyhedsavisen muni hafa viðlíka áhrif á danskan fjölmiðlamarkað og Fréttablaðið hafði á Íslandi. Það er því spennandi tækifæri fyrir mig að geta einbeitt mér að uppbyggingunni í Danmörku og vinna að undirbúningi útgáfu blaða byggða á viðskiptahugmynd Fréttablaðsins á öðrum mörkuðum," segir Gunnar Smári Egilsson.

Árni Pétur Jónsson tekur við starfi forstjóra Dagsbrúnar og gengir því starfi samhliða starfi sínu sem forstjóri Og Vodafone.

"Dagsbrún hefur vaxið hratt með ytri vexti á þessu ári og verkefni félagsins á næstu mánuðum verður að vinna úr þeim tækifærum sem nýgerð fyrirtækjakaup færa félaginu og einstökum einingum þess," segir Árni Pétur Jónsson.