Forstjóraskipti hafa átt sér stað hjá hugbúnaðarfyrirtækinu HugiAX en Páll Freysteinsson, sem hefur gengt starfi forstjóra um skeið, hefur látið af störfum. Gunnar Ingmundarson hefur tekið við starfi hans. Gunnar hefur starfað sem forstöðumaður hjá félaginu.

Viðskiptavinir HugarAx eru um 4.000 talsins samkvæmt upplýsingum frá félaginu. Hjá HugAx starfar um 135 manns. HugurAx var stofnað í júní 2006 með samruna tveggja hugbúnaðarfyrirtækjanna, Hugar hf. og Ax hugbúnaðarhúss hf. Hugur var stofnað árið 1986 og var Gunnar Ingimundarson einn af stofnendum félagsins. Ax var stofnað árið 1999.