Heildarkostnaður Vodafone við forstjóraskiptin þegar Ómar Svavarsson lét af störfum sem forstjóri og nýr ráðinn í hans stað kostuðu fyrirtækið 53 milljónir króna. Ómar hætti sem forstjori í byrjun maí og var þá Stefán Sigurðsson ráðinn í hans stað.

Fram kemur í uppgjöri Vodafone að kostnaðurinn hafi verið gjaldfærður að fullu á öðrum ársfjórðungi og færðist í bækurnar fyrir tímabilið.