Michael A. Bless, forstjóri álfyrirtækisins Century Aluminum, móðurfélags álversins á Grundartanga, seldi á gamlársdag hlutabréf í fyrirtækinu fyrir jafnvirði um fimm milljóna íslenskra króna.

Fram kemur í tilkynningu vegna viðskiptanna að Bless seldi samtals 4.184 hluti fyrir 43.765 dali. Eftir viðskiptin á hann 113.291 hlut í fyrirtækisins sem er um 1,2 milljóna dala virði eða jafnvirði tæpra 136 milljóna íslenskra króna miðað við gengi þeirra á gamlársdag.

Fram kemur í tilkynningunni að sala hlutabréfa Bless er vegna kaupréttar og greiðslu á sköttum þeim tengdum.