Eimskipafélags Íslands hefur gert kaupréttarsamning við Guðmund Davíðsson, forstjóra Eimskips á Íslandi. Samningurinn veittir kauprétt að 1.000.000 hluta á ári til þriggja ára. Markmið Eimskips með kaupréttarsamningum er að hvetja stjórnendur og samtvinna hagsmuni þeirra og hluthafa enn frekar, samkvæmt því sem segir í frétt á heimasíðu Eimskipa..

Samningarnir veitir rétt til kaupa á hlutum í Hf. Eimskipafélagi Íslands á genginu 38,3 krónur á hlut, 15. janúar ár hvert, næstu þrjú árin (2008-2010). Engir söluréttir eru til staðar eða fjármögnun tengd þeim. Skilyrði fyrir innlaus er að viðkomandi sé í starfi hjá Eimskip á innlausnardag.

Heildarfjöldi hluta í eigu fjárhagslega tengdra aðila Guðmundi Davíðssyni eru 600.000.

Heildarfjöldi hluta sem Hf. Eimskipafélag Íslands veitir kauprétt að eru 48.450.000.