Nýr forstjóri Fjármálaeftirlitsins verður kynntur á næstu klukkutímum að því er fram kom á opnum fundi viðskiptanefndar Alþingis sem nú stendur yfir.

Eins og kunnugt er var staðan auglýst fyrir nokkrum vikum og síðan var umsóknarfrestur framlengdur. Nú liggur hins vegar fyrir hver verður ráðinn og verður það tilkynnt síðar í dag.

Þetta kom fram í máli viðskiptaráðherra, Gylfa Magnússonar.