Forstjóri tískuvörumerkisins Guess, Victor Herrero, mun láta af störfum í byrjun febrúar næstkomandi. Herrero hefur ekki gefið ástæðu fyrir uppsögn sinni. Þetta kemur fram á fréttavef Reuters .

Framkvæmdastjóri hjá fyrirtækinu, Carlos Alberini, mun taka við fostjórastólnum af Herrero.