Forstjóri bresku verslunarkeðjunnar House of Fraser, John Coleman, hefur áhuga á að vinna með Baugi ef íslenska fyrirtækið ákveður að gera formlegt kauptilboð félagið, segir í frétt the Daily Mail.

Baugur hefur gert óformlegt kauptilboð í House of Fraser að virði 351 milljón punda, eða rúmlega 48 milljarðar króna.

En ekki allir hluthafar House of Fraser hafa áhuga á að selja eða vinna með Baugi og sögðust sumir ekki vera tilbúnir til að selja eignarhluti sína í félaginu.