Gunnar Sverrisson forstjóri ÍAV Holding hefur ákveðið að láta af störfum hjá félaginu. ÍAV Holding er eignarhaldsfélag sem meðal annars er móðurfélag Íslenskra aðalverktaka hf. Gunnar mun áfram sitja í stjórn félagsins.
„Starfsemi ÍAV hefur breyst og þróast mikið á undanförnum árum og á þessum tímapunkti finnst mér rétt að stíga til hliðar eftir 15 ára starf hjá Íslenskum aðalverktökum og tengdum félögum. Verktakastarfsemi hefur farið í gegnum mikinn samdrátt á undanförnum árum en nú er útlit fyrir að mesti samdrátturinn sé afstaðin þó enn vanti nokkuð upp á að eðlilegt jafnvægi hafi náðst á bygginga og verktakamarkaði,” segir Gunnar Sverrisson í tilkynningu.