Þórður Guðmundsson, forstjóri Landsnets, mun láta af störfum næstu áramót en hann hefur stýrt fyrirtækinu frá stofnun þess fyrir 10 árum. Þetta kemur fram á heimasíðu Landsnets, en tilkynnt var um þetta á ársfjórðungsfundi með starfsfólki fyrirtækisins í morgun.

Þórður hefur gegnt starfi forstjóra frá því Landsnet tók til starfa 1. janúar 2005. Sagði hann á fundinum að tími væri kominn til að stíga til hliðar og huga að öðrum hugarefnum.  Orkugeirinn væri búinn að vera hans starfsvettvangur á fjórða áratug, allt frá því að hann lauk námi í rafmagnsverkfræði frá Tækniháskólanum í Þrándheimi árið 1978. Þetta væru búin að vera gefandi og spennandi ár, fyrst hjá Landsvirkjun þar sem hann gegndi m.a. stöðu framkvæmdastjóra flutningssviðs, og ekki síður hjá Landsneti við að koma fyrirtækinu á legg og móta stefnuna til framtíðar í raforkuflutningsmálum Íslendinga.

Starf forstjóra verður auglýst laust til umsóknar á næstunni.