Að ósk forstjóra Landspítalans, Huldu Gunnlaugsdóttur, hefur heilbrigðisráðherra, veitt henni leyfi frá störfum til eins árs, frá 1. október 2009.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu en heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að setja Björn Zoëga sem forstjóra Landspítalans, frá 1. október og þar til leyfi skipaðs forstjóra rennur út.