Félagið N1 var skráð í Kauphöllina í morgun þar sem Eggert Benedikt Guðmundsson, forstjóri N1, hringdi Kauphallarbjöllunni. Hann ætlar að halda upp á daginn með skötuboði í kvöld og keppa síðan um Geðveikasta jólalagið. Sjálfur spilar hann á gítar í hljómsveitinni Heavy metan sem er hljómsveit N1 í keppninni. Óhætt er að segja að hljómsveitin hafi vakið athygli fyrir skrautlega búninga.

Myndband með hljómsveitinn má sjá hér að neðan.