Travis Kalanick, forstjóri Uber, hefur beðist afsökunar á hegðun sinni, en hann reifst við starfsmann fyrirtækisins vegna launa. Forstjórinn sendi afsökunarbeiðni á starfsmenn fyrirtækisins og sagði meðal annars: „Ég verð að breyta stjórnunarháttum mínum og þroskast.“ Frá þessu er greint í frétt CNN Money .
Í myndbandinu segir Kalanick meðal annars við bílstjórann: „Sumir einstaklingar vilja ekki taka ábyrgð á eigin skít,“ en bílstjórinn hafði sagt við Kalanick að hann væri gjaldþrota vegna lágs launataxta fyrirtækisins.
Kalanick segir einnig að það væri ofaukið að segja að hann skammaðist sín og bað starfsmanninn afsökunar, sem og starfsmenn Uber og viðskiptavini fyrirtækisins.