Vilhelm Már Þorsteinsson forstjóri Eimskipafélags Íslands keypti ríflega 70 þúsund hluti í félaginu á andvirði rétt um 10 milljóna króna á gengin 142 í dag.

Þar með er eignarhlutur hans í félaginu kominn í tæplega 136,5 þúsund hluti sem eru á andvirði tæplega 19,4 milljóna króna.

Kaupin voru á genginu 142 krónur á hlut, sem er gengi bréfa í félaginu í kauphöllinni þegar þetta er skrifað, eftir 5,33% lækkun í 123 milljóna króna viðskiptum í dag.