Tæknifréttamenn frá The Verge komu hingað til lands til þess að prófa myndavélar í iPhone 6 og iPhone 6 Plus, nýju snjallsímunum frá Apple.

Fóru þeir að Seljalandsfossi, Markarfljótsgljúfri og Jökulsárlóni og tóku myndir frá mörgum sjónarhornum og báru saman við myndir úr eldri símum Apple.

Fréttamennirnir voru ánægðir með afrakstur ferðarinnar, en myndirnar má sjá hér .