Forysta Samtaka atvinnulífsins (SA) heimsækir Evrópusambandið í Brussel í byrjun næstu viku.

Samtökin munu hitta og ræða við valda aðila innan og utan ESB. Þetta kemur fram tilkynningu frá SA.

„Ferðin er liður í umræðum innan aðildarsamtaka Samtaka atvinnulífsins um kosti og galla aðildar Íslands að Evrópusambandinu,“ segir Þór Sigfússon, formaður SA í tilkynningunni.

„Markmið okkar með þessari ferð eru að fá nánari vitneskju um hvernig evrópsku atvinnulífi farnast innan ESB, hver sé líkleg þróun ESB á næstu árum og hvernig efla megi samskipti íslensks atvinnulífs og ESB.“   Í tilkynningunni kemur fram að fjölmörg málefni verða til umfjöllunar, m.a. gjaldmiðilsmál, sjávarútvegsmál, aðgangur að innri markaði ESB og orkumál ásamt mikilvægi rannsókna og nýsköpunar.

Þá munu fulltrúar SA kynna sérstaklega árangur íslensks atvinnulífs á liðnum misserum.

„Við Íslendingar eigum að leggja miklu meiri rækt við að kynna á vettvangi ESB árangur okkar  á ýmsum sviðum atvinnulífsins og hvað megi læra af honum. Þar standa upp úr mál eins og stjórnun fiskveiða og rekstur í sjávarútvegi ásamt árangri okkar í orkumálum. Þá hef ég fundið fyrir miklum áhuga forystu atvinnulífsins í ýmsum Evrópuríkjum á árangri okkar í uppbyggingu nýrra háskóla sem atvinnulífið hefur komið beint að hérlendis,“ segir Þór í tilkynningunni.

Þá kemur fram að fulltrúar SA munu m.a. eiga fund með framkvæmdastjóra Evrópusamtaka atvinnulífsins (BUSINESSEUROPE) en SA eru aðili að samtökunum sem eru öflugasti málsvari atvinnulífs í Evrópu - með meira en 20 milljónir fyrirtækja á bak við sig. Samtökin leggja mikla áherslu á uppbyggingu atvinnulífs, nýsköpun og fjölgun starfa í Evrópu.

„Áhugi ungs fólks á Íslandi á frumkvöðlastarfi og stofnun fyrirtækja vekur  mikla athygli erlendis.  Í þessum efnum og fleirum getum við hugsanlega miðlað þekkingu okkar og reynslu,“ segir Þór Sigfússon.

Formaður Samtaka atvinnulífsins undirstrikar að Íslendinga hafi mikinn hag af því að árangur landsins sé kynntur á vettvangi Evrópusambandsins.

„Þannig styrkjum við stöðu okkar og eflum um leið  samskipti við ESB.“