Fossar markaðir í samstarf um frekari útgáfu grænna skuldabréfa í þágu umhverfismála.

Fossar markaðir hafa gengið til liðs við Climate Bonds Initiative (CBI) sem bakhjarl, fyrst íslenskra fyrirtækja, en CBI eru alþjóðleg samtök sem vinna að því að virkja skuldabréfamarkaði á heimsvísu í þágu umhverfismála.

Greint er frá þessu í tilkynningu frá Fossum þar sem félagið er sagt hafa rutt brautina fyrir græna skuldabréfamarkaðinn á Íslandi og haft umsjón með öllum útgáfum grænna skuldabréfa hér á landi. Markaðurinn hafi vaxið hratt og telji nú útgefin græn skuldabréf í íslenskum krónum yfir 20 milljarða króna.

„Við hjá Fossum mörkuðum lítum á samstarfið við Climate Bonds Initiative sem frábært tækifæri og erum spennt fyrir því að vinna með CBI að frekari uppbyggingu græna skuldabréfamarkaðarins bæði hér heima sem erlendis,“ er haft eftir Andra Guðmundssyni, framkvæmdastjóri hjá Fossum, í tilkynninguni.

Sean Kidney, framkvæmdastjóri og stofnandi CBI, er staddur á Íslandi og mun hitta fulltrúa fjárfesta, atvinnulífs og stjórnvalda og að ræða tækifæri Íslands hvað varðar útgáfu grænna skuldabréfa. En í tilkynningunni eru Sérfræðingar CBI sagðir ráðgjafar ríkisstjórna í grænum skuldabréfaútgáfum auk þess sem CBI standi að alþjóðlegu staðla- og vottunarkerfi fyrir græn skuldabréf. Þá hafi CBI umsjón með víðtækri skýrslugjöf varðandi umfang og tækifæri grænnar skuldabréfaútgáfu á heimsvísu.