Nasdaq Iceland  (Kauphöllin) hefur samþykkt umsókn Fossa markaða hf. um aðild að hlutabréfa- og skuldabréfamörkuðum Kauphallarinnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kauphöllinni.

Aðildin verður virk nk. fimmtudag, 2. júlí 2015. Auðkenni Fossa markaða hf. í INET viðskiptakerfinu verður FOS.

Ítarlegt viðtal við Harald I. Þórðarson, forstjóra Fossa, birtist í Viðskiptablaðinu á morgun.