Andri Guðmundsson, sem er búsettur í Svíþjóð og hefur verið í stjórn Fossa markaða á Íslandi, hefur verið ráðinn til að leiða uppbyggingu verðbréfafyrirtækisins Fossar markaðir hf. á Norðurlöndum.

Fyrirtækið hefur opnað skrifstofu í Stokkhólmi, en það hóf starfsemi fyrir ári síðan á innlendum markaði og þjónar erlendum aðilum á Íslandi.

Þjónusta viðskipti á erlendri grundu í hjarta borgarinnar

Skrifstofa fyrirtækisins í Stokkhólmi, sem mun starfa undir nafninu Fossar Markets AB, verður í hjarta borgarinnar á Biblioteksgatan númer 25.

Er þetta skref í aukinni áherslu félagsins á alþjóðlega starfsemi og aukinni þjónustu til viðskiptavina sem huga að viðskiptum á erlendri grundu. Áður var Anna Þorbjörg Jónsdóttir ráðin til að leiða uppbyggingu á miðlun erlendra fjárfestinga.

Fjölmörg tækifæri fylgja afnámi hafta

„Í Stokkhólmi munum við sinna bæði erlendum fjárfestum sem hyggja á fjárfestingar á Íslandi og íslenskum fjárfestum og fyrirtækjum sem hafa hug á að nýta þau fjölmörgu tækifæri sem fylgja afnámi hafta,“  segir Andri Guðmundsson í fréttatilkynningu.

„Við höfum unnið markvisst að undirbúningi undanfarið ár og erum nú vel á veg komin. Við stefnum á formlega opnun skrifstofunnar með haustinu, þegar formskilyrði hafa verið uppfyllt.“