Hafliði Breiðfjörð Guðmundsson, sem lengi hefur átt og rekið hinn vinsæla vef fotbolti.net, hefur stofnað félagið Vatn Partners ehf.

Samkvæmt skráningu í hlutafélagaskrá er tilgangur félagsins útflutningur á vatni, framleiðsla og sala á drykkjar- og heilsuvörum, inn- og útflutningur, rekstur fasteigna og fleira.

Hafliði vildi ekki tjá sig um félagið að svo stöddu, þegar haft var samband við hann.