© Aðsend mynd (AÐSEND)

Hermann Hreiðarson knattspyrnumaður lagði í byrjun júní til hálfa milljón króna sem stofnframlag í Hemmasjóð Hjálparstarfs kirkjunnar. Sérstakt gjafabréf „Hemmasjóður“ hefur nú verið útbúið á vef Hjálparstofnunar kirkjunnar, Gjöf sem gefur . Sjóðurinn hefur það að markmiði að styrkja börn efnalítilla fjölskyldna og veita þeim tækifæri til að stunda íþróttir með vinum sínum og félögum.

Fram kemur í tilkynningu að við móttöku stofnfjárins sagði Vilborg Oddsdóttir, félagsráðgjafi og umsjónarmaður innanlandsstarfs Hjálparstarfsins, að markmið með sjóðnum væri að verða við vonum og væntingum barnanna um að stunda íþróttir að eigin vali.

Í hverjum mánuði leita um 200 barnafjölskyldur sem búa við sára fátækt til Hjálparstarfsins kirkjunnar. Hjálparstarfið veitir þeim efnislegan stuðning án tillits til trúar, þjóðernis, litarháttar, kyns eða skoðana.