Arne Vagn Olsen hefur verið ráðinn sérfræðingur í eignastýringu hjá Stapa lífeyrissjóði. Arne Vagn lauk prófi í sjávarútvegsfræðum frá Háskólanum á Akureyri 1997 og stundaði MBA nám við Copenhagen Business School á árunum 2003-2004. Hann hefur lokið námi til löggildingar í verðbréfamiðlun.

Arne Vagn hefur starfað á fjármálamarkaði frá árinu 1999 og unnið hjá Íslenskum verðbréfum hf., nú síðast sem forstöðumaður markaðs- og sölusviðs.