Signý Sif Sigurðardóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri fjármögnunar hjá Eyri Invest hf og mun hefja störf í lok ágúst. Sigfús Oddsson, sem sinnt hefur starfinu frá árinu 2011, hefur ákveðið að láta af störfum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Signý er með MS-gráðu í aðgerðarannsóknum frá Columbia-háskóla í New York og hefur starfað hjá Landsvirkjun síðustu sex ár, síðast sem forstöðumaður fjárstýringar. Sem forstöðumaður bar hún m.a. ábyrgð á fjármögnun og fjárhagslegri áhættustýringu Landsvirkjunar. Þá var Signý einnig í fararbroddi í útgáfu grænna skuldabréfa Landsvirkjunar, sem var fyrsti útgefandi slíkra skuldabréfa á Íslandi.

Þórður Magnússon, stjórnarformaður Eyris Invest:

„Við bjóðum Signýju velkomna til starfa. Eyrir hefur ávallt lagt áherslu á fjárfestingar í sjálfbærum og grænum verkefnum og það er vilji okkar að fjármögnun félagsins sé í takt við það. Reynsla og þekking Signýjar mun án efa styrkja Eyri í þeirri vegferð. Ég vil þakka Sigfúsi fyrir hans störf síðustu 10 ár en mikið hefur áunnist í fjármögnun félagsins á þeim tíma.“

Signý Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri fjármögnunar:

„Ég hlakka til að ganga til liðs við Eyri og starfa með því öfluga teymi sem þar er. Áhersla Eyris á grænar fjárfestingar og sjálfbær verkefni er til fyrirmyndar og það eru spennandi tækifæri fram undan að endurspegla þessar áherslur í fjármögnun félagsins.“

Nýir stjórnarmenn hjá Eyri

Á aðalfundi Eyris Invest komu Hrund Gunnsteinsdóttir og Stefán Árni Auðólfsson ný inn í stjórn Eyris. Hrund er framkvæmdastjóri Festu, miðstöðvar um samfélagsábyrgð og sjálfbærni. Hún er jafnframt einn af stofnendum Nordic Circular Hotspot, sem stuðlar að framgangi hringrásarhagkerfisins á Norðurlöndunum. Stefán Árni er meðeigandi á lögfræðistofunni LMG og hefur setið í stjórnum nokkurra skráðra hlutafélaga á Íslandi.

Eyrir Invest hf. er fjárfestingarfélag í eigu fagfjárfesta og einstaklinga en stærstu hluthafar Eyris eru feðgarnir Þórður Magnússon og Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marels. Eyrir er stærsti hluthafi Marels en á auk þess kjölfestuhlut í Eyri Sprotum og Eyri Vexti sem fjárfesta í sprota- og vaxtarfyrirtækjum. Þeim sjóðum er stýrt af Eyri Venture Management sem er dótturfélag Eyris Invest.

Sigfús Oddsson
Sigfús Oddsson
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Sigfús Oddsson hefur ákveðið að láta af störfum sem framkvæmdastjóri fjármögnunar hjá Eyri Invest eftir tíu ára starf.