Þórður Ágúst Hlynsson hefur verið ráðinn til Icelandic Group hf. sem sérfræðingur í viðskiptaþróun.

Þórður Ágúst Hlynsson
Þórður Ágúst Hlynsson
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Þórður starfaði hjá fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans í London á árunum 2005 til 2008. Þórður var einn af stofnendum ráðgjafarfyrirtækisins Pensum Partners Limited í London sem veitti fyrirtækjum og fjárfestum alhliða fyrirtækjaráðgjöf.

Þórður er viðskiptafræðingur frá háskólanum í Reykjavík og er með M.Sc.-gráðu í fjármálum frá Cass Business School í London.