Gunnlaugur Bragi Björnsson hefur verið ráðinn til starfa hjá Viðskiptaráði Íslands og mun hann annast samskipta- og miðlunarmál ráðsins. Greint er frá ráðningu hans á vef Viðskiptaráðs .

Þar segir að undanfarið hafi hann gegnt starfi upplýsingafulltrúa Rauða krossins á Íslandi en áður starfaði hann á samskiptasviði hugbúnaðarfyrirtækisins Milestone Systems í Kaupmannahöfn. „Á árunum 2013-2018 vann Gunnlaugur hjá Arion banka og sinnti þar ýmsum sérfræðistörfum, m.a. við þjónustustjórnun, stafræna þróun og á samskiptasviði. Þá hefur Gunnlaugur verið virkur í félagsstörfum en hann sat m.a. í stjórn Hinsegin daga í Reykjavík um sjö ára skeið, fyrst sem gjaldkeri en síðar sem formaður,“ segir í fréttatilkynningu Viðskiptaráðs.

Gunnlaugur Bragi er viðskiptafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík og stundaði meistaranám í stjórnunar- og leiðtogafræðum við Hróarskelduháskóla.