Stjórn UNICEF á Íslandi hefur ráðið Birnu Þórarinsdóttur í stöðu framkvæmdastjóra félagsins, en frá árinu 2016 hún starfað sem framkvæmdastjóri stjórnmálaflokksins Viðreisnar. Birna er stjórnmálafræðingur að mennt, með meistaragráðu í alþjóðlegum öryggismálum frá Georgetown-háskóla og MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík.

Birna hefur starfað sem framkvæmdastýra landsnefndar UN Women (þá UNIFEM), yfirmaður verkefnaskrifstofu UN Women í Serbíu og Svartfjallalandi og framkvæmdastýra Evrópustofu. Hún hefur unnið sem ráðgjafi fyrir alþjóðastofnanir og utanríkisráðuneytið og kennt öryggismál og starfsemi alþjóðastofnana á háskólastigi.

Birna segist þakklát fyrir að vera treyst fyrir verkefnum UNICEF sem hún segir krefjandi.

„Starfsemi UNICEF á Íslandi skiptir gríðarmiklu máli, bæði fyrir réttindi barna á Íslandi og hag og heilsu milljóna barna um allan heim, þar sem gjafir heimsforeldra og annarra vildarvina UNICEF skipta sköpum. Nú á tímum COVID-19 eru verkefni UNICEF í þágu heilsu og réttinda barna á heimsins hættulegustu svæðum brýnni en nokkru sinni fyrr. Ég hlakka til að takast á við áskoranirnar framundan með því frábæra teymi sem starfar hjá UNICEF,“ segir Birna.

UNICEF, eða Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, hefur í tæpa sjö áratugi starfað í hjálparstarfi fyrir börn í heiminum og starfar í yfir 190 löndum. Barnahjálpin berst fyrir réttindum barna á heimsvísu auk þess að sinna bæði langtímauppbyggingu og neyðaraðstoð. UNICEF treystir eingöngu á frjáls framlög og hefur að leiðarljósi þá bjargföstu trú að öll heimsins börn eigi rétt á heilsugæslu, menntun, jafnrétti og vernd.

„Undanfarin ár hafa einkennst af markvissri og árangursríkri uppbyggingu samtakanna. Stjórn og starfsfólk UNICEF á Íslandi þakkar Bergsteini fyrir að leiða það góða starf og býður um leið Birnu hjartanlega velkomna til starfa,” segir Kjartan Örn Ólafsson, stjórnarformaður UNICEF.

„Stjórn UNICEF lagði áherslu á faglegt og vandað ráðningarferli. Sérstök valnefnd á vegum stjórnar naut liðsinnis ráðgjafa Capacent. Alls sóttu 81 um starfið og margir í þeim hópi voru ríkir af hæfileikum og reynslu. Endanleg ákvörðun var loks tekin sam¬hljóða á fundi stjórnar síðastliðinn mánudag og við erum afskaplega ánægð með niðurstöðuna. Birna býr að reynslu, menntun og hæfileikum sem gera hana kjörna í starfið.“