Stjórnvöld í Frakklandi og í Belgíu samþykktu í nótt að setja enn meira fjármagn í Dexia-bankann. Alls var eigið fé hans aukið um 5,5 milljarða evra vegna fjárhagsvandræða, en bankinn er í eigu ríkjanna tveggja. Tap bankans á fyrstu níu mánuðum ársins nam 2,4 milljörðum evra.
Financial Times fjallar um málið í dag. Í umfjölluninni segir að ákvörðun Frakka og Belga muni líklega valda deilum og þykir umdeild, þar sem aukið fé er lagt í bankakerfið á sama tíma og skera þarf niður í ríkisútgjöldum.