Starfshópur samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um aðgerðir til að jafna betur stöðu kynja í sveitarstjórnum leggur meðal annars til að ráðuneytið skipuleggi hvatningarátak, boði til samráðs við stjórnmálaflokka um fjölgun kvenna og að framboðslisti verði aðeins heimilaður ef hlutfall kynja sé jafnt.

Þetta kemur fram á vef samgöngu- og sveitastjórnarráðuneytisins en Sigrún Jónsdóttir, formaður hópsins, afhenti Kristjáni L. Möller greinargerð hópsins nýverið og sagði hann næsta skref að fara yfir tillögurnar og hrinda í framkvæmd þeim ábendingum sem unnt þykir.

Í greinargerð hópsins eru settar fram tillögur um mögulegar leiðir og aðgerðir af hálfu stjórnvalda sem verða mættu til að auka hlut kvenna í sveitarstjórnum. Fjallað er um nýlegar aðgerðir í Danmörku og Noregi. Þá er fjallað um kynjakvóta, einkynja sveitarstjórnir og áhrif persónukjörs.

Meðal tillagna starfshópsins um mögulegar aðgerðir er að samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið skipuleggi kynningarstarf og hvatningarátak fyrir því að konur til jafns við karla taki þátt í störfum sveitarstjórna, að ráðuneytið boði til samráðs með forystufólki úr stjórnmálaflokkunum til að hvetja til jafnræðis meðal kynjanna í efstu sætum framboðslista og að haldin verði námskeið á vegum ráðuneytisins fyrir konur um þátttöku í sveitarstjórnarstarfi.

Þá er bent á þann möguleika að ekki verði heimilt að setja fram framboðslista nema jafnt hlutfall sé milli kynja. Einnig er bent á að taka þurfi tillit til fjölskyldufólks við skipulagningu funda og að kynna þurfi starf í sveitarstjórn með jákvæðum fólki, til dæmis fyrir ungu fólki í sveitarfélögum. Loks er lagt til að ráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga skipi starfshóp til að kanna starfsumhverfi og starfskjör kjörinna fulltrúa í sveitarstjórn.

Sjá nánar á vef ráðuneytisins.