Svíþjóð, Danmörk, Finnland, Noregur og Ísland eru sammála um að þörf sé á áframhaldandi samstarfi landanna um áætlanir gegn inflúensufaraldri.

Ekki verður þó byggð sameiginleg bóluefnisverksmiðja. Löndin eru ekki öll sannfærð um að nægileg tæknikunnátta sé til staðar til að hefja framleiðslu bóluefnis gegn inflúensu.

Þetta kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu félags- og heilbrigðisráðherranna sem send var út eftir fund þeirra í Stokkhólmi á þriðjudag.

Löndin voru sammála um fjögur atriði sem rædd voru á fundinum:

- Sameiginlegar aðgerðir í málum þar sem sameiginlegra aðgerða eða afstöðu er þörf hvað varðar áætlanir til að koma í veg fyrir inflúensufaraldur.

- Að starfa saman að greiningarvinnu á breytingum á bólusetningarsviðinu, sem gætu haft þýðingu hvað varðar aðgengi að bóluefni gegn faraldri. Ný sameiginleg greining verði gerð eftir um það bil tvö ár.

- Miðlun upplýsinga um reynslu , milli landa, af því að geyma inflúensubóluefni.

- Miðlun upplýsinga um meðhöndlun og geymslu bóluefnis gegn veirusýkingum.

Svíþjóð fer með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni árið 2008. Haldin verður vinnustofa um áætlanir hvað varðar bóluefni og verður hún liður í því að auka og styrkja norrænt samstarf um aðgerðir til varnar inflúensufaraldri.

Í samnorræna hópnum sem stýrt er af Íslandi var einnig rætt um möguleika á auknu samstarfi hvað varðar markaðsleyfi fyrir lyf. Fulltrúi Íslands gerði grein fyrir tilraunaverkefni um málið, sem Svíþjóð og Ísland vinna að.