Jökull H. Úlfsson, framkvæmdastjóri Stefnis, hefur óskað eftir að láta af störfum og hefur komist að samkomulagi við félagið um starfslok. Frá þessu er greint í fréttatilkynningu.

Kristbjörg M. Kristinsdóttir, staðgengill framkvæmdastjóra Stefnis, mun taka tímabundið við starfi framkvæmdastjóra eða þar til stjórn hefur ráðið í stöðuna. Jökull mun ljúka tilteknum verkefnum fyrir Stefni og vera stjórn og settum framkvæmdastjóra til ráðgjafar.

Sigrún Ragna Ólafsdóttir, stjórnarformaður Stefnis:

„Fyrir hönd stjórnar og starfsfólks Stefnis vil ég þakka Jökli fyrir samstarfið sem hefur verið ánægjulegt og árangursríkt eins og starfsemi Stefnis á árinu 2019 ber vitni. Stjórn óskar Jökli alls hins besta í framtíðinni.“