Töluverðar breytingar eru að verða á skipulagi Icelandair um þessar mundir. Í nóvember voru kynntar skipulagsbreytingar en nú í kjölfarið hefur verið ákveðið raða skipuriti félagsins upp að nýju.

Starfsemi félagsins verður skipt í tvennt; annars vegar alþjóðaflugstarfsemi og hins vegar fjárfestingar. Í tilkynningu frá Icelandair segir að flugstarfsemi félagsins vegi þyngst í rekstri og afkomu samstæðunnar og það mikilvægt sé að uppbygging félagsins endurspegli þá staðreynd.

„Félagið hefur stækkað mjög mikið á undanförnum árum; áfangastöðum hefur fjölgað, umsvif og velta hafa stóraukist, flugflotinn stækkað og starfsfólki fjölgað. Önnur umsvif hafa einnig aukist mjög mikið og samstæðan hefur margfaldast að stærð og umfangi. Með þessum breytingum nú erum við að skipuleggja félagið með áherslu á kjarnastarfsemi þess, alþjóðaflugrekstur, og sjáum mikil tækifæri til framtíðar. Ný framkvæmdastjórn félagsins er skipuð mjög kraftmiklu fólki með margþætta menntun og reynslu, bæði innan fyrirtækisins og utan þess. Ég bind miklar vonir við þann öfluga hóp sem nú tekst á við það verkefni að leiða samhent starfsfólk til móts við spennandi tíma,“ er haft eftir Björgólfi Jóhannssyni, forstjóra Icelandair í tilkynningu.

Alþjóðaflugstarfsemin mun skiptast í fimm svið; fjármálasvið, mannauðssvið, rekstrarsvið, stefnumótunar- og viðskiptaþróunarsvið og sölu- og markaðssvið.

Mannauðssvið mun bera ábyrgð á að móta og framfylgja starfsmannastefnu félagsins. Í því felst meðal annars að halda utan um ráðningar, starfsþjálfun og starfsþróun. Framkvæmdastjóri mannauðssviðs verður Elísabet Helgadóttir sem gengur til liðs við félagið frá Íslandsbanka þar sem hún hefur starfað sem starfsþróunarstjóri undanfarin ár. Elísabet hefur starfað við mannauðsmál hjá Íslandsbanka frá árinu 2007 og  undanfarin fimm ár sem starfsþróunarstjóri. Hjá Íslandsbanka hafði hún m.a. yfirumsjón með allri fræðslu og þjálfun starfsmanna, stjórnendaþjálfun, markþjálfun og frammistöðustjórnun. Á árunum 2000-2007 starfaði hún hjá Capacent Gallup við rannsóknir og ráðgjöf. Elísabet lauk BA gráðu í sálfræði frá Háskóla Íslands árið 2000 og MA gráðu í Mannauðsstjórnun frá EADA Business School í Barcelona árið 2007.

Stefnumótunar- og viðskiptaþróunarsvið mun bera ábyrgð á stefnumótun félagsins og að henni sé framfylgt. Sviðið mun meðal annars bera ábyrgð á þróun leiðakerfis félagsins, stefnumótandi verkefnum, stafrænni þróun og vinnslu gagna og vöruþróun. Framkvæmdastjóri sviðsins verður Birna Ósk Einarsdóttir sem kemur til félagsins frá Landsvirkjun þar sem hún hefur gegnt starfi framkvæmdastjóra markaðs- og viðskiptaþróunarsviðs. Birna Ósk var framkvæmdastjóri markaðs- og viðskiptaþróunarsviðs Landsvirkjunar. Hún var framkvæmdastjóri hjá Símanum frá árinu 2011, síðast yfir sölu- og þjónustusviði. Birna Ósk starfaði hjá Símanum frá árinu 2001, fyrst við almannatengsl og mannauðsráðgjöf. Hún var forstöðumaður verkefnastofu Símans á árunum 2006 til 2010 og stýrði samhliða markaðsmálum 2009-2010 þar til hún tók við stöðu framkvæmdastjóra. Birna hefur setið í stjórn Skeljungs hf. frá árinu 2015 og Já ehf.  frá árinu 2017.  Hún sat í stjórn Farsímagreiðslna ehf.  frá 2012 til 2015 og í stjórn Gildis, lífeyrissjóðs frá 2014-2015. Birna Ósk er viðskiptafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík, með M.Sc. gráðu í stjórnun og stefnumótun frá Háskóla Íslands og hefur lokið AMP námi fyrir stjórnendur frá IESE Business School í Barcelona

Fjármálasvið mun meðal annars bera ábyrgð á fjárstýringu og fjármögnun félagsins, áhættustýringu, áætlanagerð og greiningu, fjárfestatengslum, eignastýringu, viðskiptagreind og reikningshaldi. Framkvæmdastjóri Fjármálasviðs verður Bogi Nils Bogason . Hann hefur verið framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group frá því í október 2008 og er nú þegar meðlimur framkvæmdastjórnar samstæðunnar.

Rekstrarsvið mun bera ábyrgð á öllum flugrekstri félagsins, viðhaldi og verkfræðistarfsemi, gæðaeftirliti og öryggismálum. Framkvæmdastjóri Rekstrarsviðs verður Jens Þórðarson . Hann hefur verið framkvæmdastjóri tæknisviðs Icelandair seinustu ár.

Sölu- og markaðssvið mun bera ábyrgð á sölu og markaðsstarfi félagsins á öllum mörkuðum. Einnig mun sviðið meðal annars bera ábyrgð á vörumerki, tekjustýringu, verðlagningu, þjónustuupplifun og hliðartekjum. Framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs verður Guðmundur Óskarsson en hann hefur verið framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Icelandair frá síðasta vori.

Framkvæmdastjórar fyrrnefndra sviða mynda framkvæmdastjórn félagsins auk Björgólfs Jóhannssonar , forstjóra og Magneu Þóreyjar Hjálmarsdóttur , framkvæmdastjóra Icelandair Hotels, sem bæði eru núverandi meðlimir framkvæmdastjórnar auk Gunnars Más Sigurfinnssonar , framkvæmdastjóra Icelandair Cargo og Jens Bjarnasonar sem mun sinna verkefnum sem snúa að meðal annars að samskiptum við eftirlitsaðila á sviði flugrekstrar og alþjóðasamskiptum.

Fjárfestingar félagsins eru með tvennum hætti: annars vegar í flugtengdri starfsemi og hins vegar ferðaþjónustu á Íslandi. Undir flugtengda starfsemi heyra dótturfélögin Air Iceland Connect, Loftleiðir Icelandic og Vita. Fjárfestingar félagsins í ferðaþjónustu á Íslandi eru félögin Iceland Travel og Icelandair Hotels.