Lárus Óskarsson, framkvæmdastjóri Aðfanga dótturfélags Haga, hefur selt 967.586 hluti í Högum. Samkvæmt tilkynningu til Kauphallarinnar seldi hann á genginu 43,8 á hlut og því nemur söluandvirðið 42,4 milljónum króna.

Gengi bréfa í Högum hefur hækkað um 2,33% í 117 milljóna króna viðskiptum í dag.