Þröstur Emilsson, framkvæmdastjóri ADHD-samtakanna hefur verið kærður til lögreglu fyrir fjármálamisferli. Fyrir viku síðan vék stjórn samtakanna honum frá störfum. Þetta kemur fram á vef RÚV .

Þröstur tók við starfinu haustið 2013. Samkvæmt heimildum RÚV hefur hann verið kærður fyrir að misnota fjármuni samtakanna. Fjárhæðirnar sem um ræðir séu umtalsverðar og ekki þykir leika vafi á því að Þröstur hafi misnotað aðstöðu sína sem framkvæmdastjóri og aðgang sinn að fjármunum samtakanna.