© Aðsend mynd (AÐSEND)

Karl Peter Vilandt, framkvæmdastjóri Applicon A/S, dótturfélags Nýherja í Danmörku, hefur sagt starfi sínu lausu. Uppsögnin er af persónulegum ástæðum, að því er fram kemur í tilkynningu.

Rekstur Applicon Í Danmörku hefur ekki gengið sem skyldi og hefur tapreksturinn haft áhrif á afkomu Nýherja.

Gert er ráð fyrir að eftirmaður hans verði ráðinn á næstunni en þangað til mun Karl Peter sinna starfi framkvæmdastjóra sem fyrr.

Hjá Applicon í Danmörku starfa á fjórða tug manns að þjónustu og ráðgjöf í tengslum við viðskiptahugbúnaðarlausnir SAP.